Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í febrúar á þessu ári þá áttu 365 miðlar hæsta tilboðið í sýningarréttinn á enska boltanum í útboði Premier League. Samkvæmt heimildum blaðsins voru þrír tilboðsgjafar, 365 miðlar, Skjáreinn og ónafngreindur þriðji aðili.

Verðmiðinn á sýningarréttinum fyrir næstu þrjú tímabil sem voru boðin út liggur ekki undir einum milljarði króna samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins og áður hefur verið greint frá.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér.