Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðs Íslands.

Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, er formaður nefndarinnar og skipaður án tilnefningar. Með honum skipa nefndina Ásta Dís Óladóttir, lektor við Háskóla Íslands, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins, og Jacqueline Clare Mallet, lektor við Háskólann í Reykjavík, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands.

Tíu einstaklingar sóttu um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika en áformað er að hæfnisnefndin skili niðurstöðum sínum til ráðherra eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Eftirfarandi er listi yfir umsækjendur um stöðu varaseðlabankastjóra:

Arnar Bjarnason, lektor og framkvæmdastjóri

Ásdís Kristjánsdóttir, aðalhagfræðingur og forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins

Guðrún Johnsen, hagfræðingur

Gunnar Jakobsson, lögfræðingur

Haukur C. Benediktsson, hagfræðingur

Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins

Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur

Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga

Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja