Fjármálaeftirlitið (FME) hefur gengið frá ráðningu þriggja nýrra framkvæmdastjóra á nýjum eftirlitssviðum. Stöðurnar voru auglýstar í nóvember síðastliðnum. Alls bárust 72 umsóknir um störfin.

Halldóra E. Ólafsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri lífeyris- og verðbréfasjóðasviðs Fjármálaeftirlitsins frá því í apríl 2008, var ráðin framkvæmdastjóri eindareftirlitssviðs. Lúðvík Þorgeirsson, sem starfað hefur hjá Actavis og þar áður hjá Tryggingamiðstöðinni hf. var ráðinn framkvæmdastjóri greiningar- og áætlanasviðs. Sigurveig Guðmundsdóttir, hagfræðingur á lífeyris- og verðbréfasjóðasviði Fjármálaeftirlitsins, var ráðin framkvæmdastjóri vettvangsathugunarsviðs.

„Unnið hefur verið að skipulagsbreytingum innan Fjármálaeftirlitsins frá því í október síðastliðnum með virkri þátttöku starfsmanna. Afrakstur vinnunar er endurskipulagning Fjármálaeftirlitsins sem meðal annars felst í því að fimm svið hafa verið lögð niður og þrjú ný eftirlitssvið stofnuð. Nýju eftirlitssviðin þrjú eru eindareftirlit, vettvangsathuganir og greiningar- og áætlanir.

Hið nýja skipulag er verkefnamiðað og taka nýju eftirlitssviðin þrjú við öllum verkefnum frá þeim fimm eldri sviðum sem lögð eru niður en skipting þeirra tók að miklu leyti mið af geirum fjármálamarkaðarins. Markmið skipulagsbreytinganna er að auka enn skilvirkni og samhæfingu í starfseminni. Nýtt skipulag býður meðal annars upp á meiri sveigjanleika í nýtingu mannauðs og hámarkar þannig slagkraft Fjármálaeftirlitsins,“ segir í tilkynningu FME.