Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á stjórnendateymi Primera Air. Ásgeir Vilhjálmsson hefur verið ráðinn til að taka við sem framkvæmdastjóri framleiðslusviðs flugfélagsins, Valdimar Björnsson, sem nú er fjármálastjóri, mun taka við starfi framkvæmdastjóra starfsemi Primera Air á Íslandi, og Þórður Bjarnason verður framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs.

Áður hefur verið greint frá því að Hrafn Þorgeirsson hefur tekið við sem forstjóri Primera Air af Jóni Karli Ólafssyni.