Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Valitor. Í tilkynningu segir að markmið breytinganna sé að styrkja samþættingu innan Valitor og dótturfyrirtækja félagsins í Bretlandi og Danmörku, ásamt samvirkni samstæðunnar.

Ingibjörg Arnarsdóttir.
Ingibjörg Arnarsdóttir.

Framkvæmdastjóri nýs stjórnunar- og mannauðssviðs hjá fyrirtækinu er Ingibjörg Arnarsdóttir. Hún gegndi áður stöðu framkvæmdastjóra Áhættustýringar, fjármála og mannauðs hjá Valitor frá árinu 2008. Ingibjörg er viðskiptafræðingur, Cand.oecon, frá endurskoðunarsviði Háskóla Íslands og hefur M.Sc. Finance próf frá Cass Business School í London.

Birkir Jóhannsson.
Birkir Jóhannsson.

Birkir Jóhannsson er nýr framkvæmdastjóri Fjármálasviðs. Helstu verkefni sviðsins eru stefnumótun fjármála Valitor og dótturfélaga, fjárstýring og fjárhagsleg greining. Birkir starfaði áður við fyrirtækjaráðgjöf á Fjárfestingarbankasviði Arion banka árin 2010-2015. Þar áður starfaði hann hjá Lögmönnum Höfðabakka og Landsbanka Íslands. Birkir er með MCF gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum. Hann er jafnframt lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Kristján Þór Harðarson.
Kristján Þór Harðarson.

Kristján Þór Harðarson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Alþjóðasviðs. Meginverkefni sviðsins eru stjórnun á viðskiptum fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum, bæði varðandi færsluhirðingu fyrir erlenda kaupmenn og útgáfu á greiðslukortum til erlendra korthafa. Alþjóðasvið starfrækir söluskrifstofu í London. Kristján Þór Harðarson hóf störf hjá félaginu árið 2008 og gegndi áður stöðu framkvæmdastjórna Markaðs- og viðskiptaþróunar. Hann lauk B.Sc. prófi í markaðsfræðum og M.A. prófi í alþjóðamarkaðsfræðum frá University of Alabama í Bandaríkjunum.

Framkvæmdastjórn Valitor skipa nú auk ofangreindra: Viðar Þorkelsson, forstjóri, Sigurhans Vignir, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs, Bergsveinn Sampsted, framkvæmdastjóri Kortaútgáfusviðs, Steinunn Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Þjónustu og rekstrar og Sigurður Ingvar Ámundason, framkvæmdastjóri Vöruþróunar og nýsköpunar.