Ný stjórn Advania hf. var kjörin á aðalfundi félagsins hinn 23. maí 2013. Aðalmenn eru Anna Rún Ingvarsdóttir, Finnbogi Jónsson, Katarina Burton, Kristinn Pálmason og Þór Hauksson. Varastjórn skipa Erna Eiríksdóttir og Hafliði Helgason. Finnbogi Jónsson var endurkjörinn sem stjórnarformaður.

Katarina Burton.
Katarina Burton.

Katarina Burton kemur ný inn í stjórn félagsins. Hún hefur meðal annars gegnt stjórnunarstöðum hjá bandaríska tæknifyrirtækinu Honeywell og sænska fjarskiptafyrirtækinu Ericsson. Katarina hefur undanfarið ár setið í stjórn Advania í Svíþjóð. Ásamt Katarinu taka tveir nýjir aðilar sæti í stjórn, Kristinn Pálmason og Hafliði Helgason, sem báðir eru starfsmenn Framtakssjóðs Íslands.

Samkvæmt tilkynningu uppfylla stjórn og varastjórn Advania ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga. Konur eru 40% stjórnarmanna í aðalstjórn og 50% í varastjórn. Konur eru í dag tæplega þriðjungur starfsfólks og stjórnenda hjá Advania.