Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til Maclands. Guðjón Pétursson hefur þannig verið ráðinn verslunarstjóri hjá Maclandi í Hafnarfirði, en hann starfaði áður hjá Símanum og Nova.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson er nýr sölumaður í verslun fyrirtækisins í Hafnarfirði en hann var áður hjá Alterna. Þá hefur Steindór Grétar Kristinsson verið ráðinn á verkstæði Maclands á Laugavegi. Steindór er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í Sonology.

Macland er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu við allar vörur tengdar Apple. Í dag eru verslanir Macland tvær, að Laugavegi 23 og nýverið opnaði Macland í Helluhrauni 18 í Hafnarfirði.