Úrval Útsýn hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn, þau Jóhann Björgvinsson, Kristínu Gunnarsdóttur og Luka Kostic hafa verið ráðin til starfa hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Jóhann Björgvinsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri Úrvals Útsýnar. Hann starfaði áður sem fararstjóri Úrvals Útsýnar á Tenerife í fimm ár. Áður en Jóhann hóf störf í ferðageiranum starfaði hann erlendis um árabil við eigin rekstur í verslunarrekstri og framkvæmdastjórn.

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem framleiðslustjóri hópa- og sérferða Úrvals Útsýnar. „Kristín hefur mikla reynslu úr ferðageiranum þar sem hún starfaði hjá Icelandair og öðrum ferðaskrifstofum á árunum 1980-2012. Síðustu árin hefur Kristín starfað hjá Seðlabankanum, þar sem hún sá um ferðir starfsmanna,“ segir í tilkynningunni.

Luka Kostic hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttadeildar Úrvals Útsýnar. „Luka þekkir vel til íþróttaferða þar sem hann vann hjá í íþróttadeild Úrvals Útsýnar á árunum 2009-2014. Síðustu 2 ár hefur hann rekið ferðaskrifstofuna Markferðir sem seldi íþróttaferðir. Luka kemur úr íþróttunum, er fyrrum knattspyrnumaður og sá síðar um þjálfun á yngri landsliðum í fótbolta,“ er einnig tekið fram.

Haft er eftir Þórunni Reynisdóttur, forstjóra Ferðaskrifstofu Íslands sem rekur ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir, að þau séu ánægð að fá svo góðan og reynslumikinn liðsauka til þeirra. „Það stefnir í enn frekari aukningu á næsta ári vegna aukins framboðs á flugi til og frá Íslandi. Núna fljúga 34 flugfélög til og frá landinu og hægt er að bóka þau öll í gegnum okkur, sérstaklega þægilegt fyrir fyrirtæki að nýta sér þá þjónustu hjá okkur,“ er einnig haft eftir henni í tilkynningunni.