Eftir skipulagsbreytingar síðustu mánaða í Þjóðleikhúsinu hafa nú verið ráðnir þrír nýir stjórnendur í Þjóðleikhúsið. Störf þeirra koma í stað þriggja annarra starfa sem voru aflögð sem hluti af áherslu- og skipulagsbreytingum í leikhúsinu. Nýju starfsmennirnir eru, að því er kemur fram í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu, allir afar reynslumiklir á sviði leikhúsa, menningar og þjónustu.

Steinunn Þórhallsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri leikhússins, Jón Þorgeir Kristjánsson tekur við sem forstöðumaður samskipta og markaðsmála og Kristín Ólafsdóttir tekur við nýju starfi þjónustu- og upplifunarstjóra. Þau munu koma til starfa á næstu mánuðum við að undirbúa nýtt leikár Þjóðleikhússins sem hefst í lok ágúst.

„Þessar breytingar nú koma í kjölfar endurnýjunar í hópi listrænna stjórnenda leikhússins og skipulagsbreytinga sem kynntar voru í mars. Markmið breytinganna eru að bæta listrænt starf og gæði, að opna leikhúsið og sækja nýja leikhúsgesti og síðast en ekki síst að bæta þjónustu og upplifun leikhúsgesta. Magnús Geir Þórðarson tók við sem leikhússtjóri þann 1. janúar síðastliðinn,“ segir í tilkynningunni.

Steinunn nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins

Steinunn hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri í íslensku lista- og menningarlífi. Frá 2017 hefur hún verið framkvæmdastjóri hjá RÚV þar sem hún starfaði hátt á annan áratug sem ferla- og skipulagsstjóri, verkefnastjóri umbótaverkefna, dagskrárgerðarmaður og framleiðandi. Hún var markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík og Íslensku óperunnar á árunum 2010-2014. Steinunn er með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, B.A. gráðu í spænsku og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á háskólanám í mannauðsstjórnun og leiðtogafræðum í Danmörku. Hún hefur kennt námskeið um stefnumótun og hlutverk menningarfyrirtækja við Háskólann á Bifröst og unnið sem ráðgjafi um stafræna umbreytingu og jafnréttismál fyrir EBU, European Broadcasting Union.

Jón Þorgeir nýr forstöðumaður samskipta- og markaðsmála

Jón Þorgeir er með áralanga reynslu af markaðsstörfum, hönnun og leikhússtörfum. Hann er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Jón Þorgeir er nú framkvæmdastjóri ÍMARK - samtaka markaðsfólks á Íslandi. Þar á undan var hann markaðsstjóri Borgarleikhússins auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda leikhúsuppsetninga bæði hérlendis og erlendis bæði sem hönnuður og/eða markaðssérfræðingur. Einnig hefur hann hannað og framleitt auglýsingar fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins.

Kristín tekur við nýju starfi þjónustu- og upplifunarstjóra

Kristín Ólafsdóttir hefur reynslu sem þjónustustjóri, veitingamaður og ráðsmaður á Bessastöðum. Hún er með meistaragráðu í framreiðslu, blómaskreytir og hefur einnig lokið námi í viðburðarstjórnun frá Háskólanum á Hólum.  Kristín var yfirþjónn á Icelandair-hótelinu á Flúðum og Hótel KEA.  Kristín var ráðsmaður á Bessastöðum í 9 ár, frá 2002-2011 og stýrði framhúsi og veitingasölu Borgarleikhússins á árunum 2013-2018.  Þá hefur hún ásamt eiginmanni sínum rekið veiðihúsin við Laxá í Kjós, og síðustu ár veiðihúsin við Selá og Hofsá í Vopnafirði. Að auki hefur hún einnig séð um þjónustu í Eldar-lodge, sem er hágæða gistiaðstaða fyrir erlenda ferðamenn.

112 umsóknir bárust um störfin þrjú, þar af 32 í stöðu framkvæmdastjóra, 38 í starf forstöðumanns samskipta og markaðsmála og 42 í stöðu þjónustu- og upplifunarstjóra.