Þrír lykilstjórnendur hafa verið ráðnir til starfa á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Heilbrigðisstofnun Norðurlands varð til í október með sameiningu Heilbrigðisstofnana Þingeyinga, Fjallabyggðar, á Sauðárkróki og á Blönduósi og heilsugæslunnar á Akureyri og á Dalvík.

Guðný Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar. Guðný er hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarið unnið á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á Landspítalanum, síðast sem verkefnastjóri og formaður hjúkrunarráðs á Landspítalanum.

Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri lækninga. Hann lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands og er sérfræðingur í heimilislækningum. Hann hefur verið yfirlæknir og framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki undanfarin ár.

Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og stoðþjónustu. Hann hefur meistaragráðu í rekstrar- og stjórnunarverkfræði frá Álaborgarháskóla og stundar nú meistaranám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Guðmundur hefur starfað sem ráðgjafi, framkvæmdastjóri Lundar rekstrarfélags og kennt við Háskólann á Akureyri.