Auður Björk Guðmundsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Linda Jónsdóttir hafa verið skipaðar í stjórn Framtakssjóðs Íslands (FSÍ).

Fréttatilkynning frá FSÍ:

Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustusviðs VÍS
Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustusviðs VÍS
© Aðsend mynd (AÐSEND)
„Auður Björk Guðmundsdóttir lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og BA prófi í fjölmiðlafræði með áherslu á almannatengsl frá University of South Alabama, USA, árið 1993.  Hún hefur frá árinu 2005 verið framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs VÍS.  Á árunum 2002 - 2005 starfaði hún sem deildarstjóri kynningardeildar Olíufélagsins ehf. og þar áður sem kynningarfulltrúi Eimskipafélags Íslands og markaðsstjóri DV.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar hjá Landsbanka Íslands.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar hjá Landsbanka Íslands.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt og framkvæmdastjóri Eignastýringar hjá Landsbanka Íslands.  Hún starfaði frá árinu 2007 sem sjóðsstjóri hjá Arev verðbréfafyrirtæki og á árunum 1998 - 2006 hjá Kauphöll Íslands.  Þar gegndi hún m.a. starfi forstöðumanns skráningarsviðs en var áður sérfræðingur á sama sviði.  Á árunum 1994 - 1998 var hún  forstöðumaður einstaklingsþjónustu Fjárvangs.  Hún hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis.

Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, sest í stjórn Framtakssjóðs Íslands
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, sest í stjórn Framtakssjóðs Íslands
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og lauk meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík 2010.  Hún hefur einnig lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari.  Á árunum 1999-2003 var hún yfirmaður fjárstýringar hjá Eimskip og hjá Burðarás á árunum 2003-2005.  Hún starfaði við fjárstýringu og fjármögnun hjá Straumi fjárfestingarbanka á árunum 2005-2009 og gegndi þar meðal annars starfi forstöðumanns eigna- og skuldastýringar bankans.

Úr stjórn Framtakssjóðsins hafa gengið Auður Finnbogadóttir, Guðfinna Bjarnadóttir og Vilborg Lofts.

Í stjórn Framtakssjóðsins sitja nú:

Ágúst Einarsson, prófessor (stjórnarformaður).

Ragnar Önundarson, varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, (varaformaður).

Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustusviðs VÍS.

Baldur Þór Vilhjálmsson, forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar hjá Landsbanka Íslands.

Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel.

Þorkell Sigurlaugsson, Framkvæmdastjóri  Fjármála- og rekstrarsviðs Háskólans í Reykjavík.“