Cortefiel Group hefur í samstarfið við fjárfestingafélagið Gjörð opnað þrjár nýjar verslanir í Smáralind; Springfield, Women's Secret og Cortefiel. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Haft er eftir Sigrúnu Andersen framkvæmdastjóra búðanna að mikil tilhlökkun ríki yfir því að sýna Íslendingum vörur Springfield og Women Secret. „Springfield endurspeglar allt það nýjasta í tískuheiminum en hönnuðirnir þar fylgjast afar vel með nýjustu straumum og stefnum í hönnun og tísku. Viðskiptavinir Smáralindar á aldrinum 20 – 30 ára koma sko ekki að tómum kofanum hvað varðar gæða á góðu verði. Að sama skapi er Women´s Secret leiðandi í Evrópu á sviði undirfatnaðar, nærfata, sund- og náttfatnaðar með ótrúlega flottar vörur“ segir Sigrún.

Þess má geta að Cortefield samsteypan er meðal stærstu hönnuða og framleiðenda tískufatnaðar í Evrópu með veltu yfir 1.011 milljarða evra á árinu 2014.