Þær Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, og tveir fyrrverandi formenn landssambandsins, þær Jarþrúður Ásmundsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir, hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum. Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem þær birtu á Facebook síðum sínum. Ástæðan er sögð sú að þær eigi ekki samleið með flokki sem skili af sér niðurstöðum úr prófkjöri eins og nýverið hefur gerst.

Yfirlýsingin hljóðar svo í heild sinni:

Við undirritaðar, formaður og tveir fyrrverandi formenn Landssambands sjálfstæðiskvenna, höfum sagt okkur úr Sjálfstæðisflokknum. Undanfarin ár höfum við varið kröftum okkar og tíma í þágu flokksins og talað fyrir jafnrétti kynjanna þegar kemur að vali í áhrifastöður innan flokksins og kjöri fulltrúa. Nú teljum við fullreynt að hreyfa við þeim íhaldssömu skoðunum og gildum sem ríkja um jafnréttismál í Sjálfstæðisflokknum.

Ýmis skref hafa verið stigin sem ættu að leiða til aukins jafnréttis kynjanna á síðustu árum. Víðtæk andstaða hefur þó verið gegn því að ganga lengra í að breyta kerfi og ásýnd flokksins í þá veru að konur fáist til þátttöku. Mikið hefur verið talað fyrir því að velja „hæfasta einstaklinginn“. Það sannaði sig í prófkjörum síðustu vikna að þessi málflutningur er úreltur og ekki í neinum takti við nútímann og enn einu sinni kom í ljós að prófkjör skila ekki endilega góðum niðurstöðum þó að þau séu kannski lýðræðisleg fyrir þann þrönga hóp sem tekur þátt í þeim. Það er kominn tími til að horfast í augu við það að prófkjör eru úrelt leið við val á lista. Ýmsir aðrir stjórnmálaflokkar veigra sér ekki við því að velja þannig á lista að konur fái jöfn tækifæri til ábyrgðar á við karla. Nema staðan sé sú innan Sjálfstæðisflokksins að allir „hæfustu einstaklingarnir“ séu karlar. Við höfum barist fyrir aukinni ábyrgð kvenna í flokknum og mótmælt þeirri nálgun að ekki megi tala fyrir jöfnum áhrifum kynja innan hans. Þar sem við vorum drifnar áfram af ólýsanlegri bjartsýni og ofurtrú á að Sjálfstæðisflokkurinn myndi breytast og beita sér í verki fyrir auknu jafnrétti kynjanna, héldum við áfram að taka slagi fyrir konur.

Við höfum m.a. haldið fjölda leiðtoganámskeiða fyrir konur, hvatningar- og stuðningsfundi fyrir konur sem hafa hug á að bjóða sig fram, talað fyrir mikilvægi þátttöku kvenna á ótal fundum innan flokksins, haldið ýmsa viðburði til að efla tengslanet kvenna, hvatt flokksmenn með ýmsum hætti til að kjósa konur, mótað og fengið samþykkta jafnréttisstefnu, haft frumkvæði af því að fá landsfund 2015 tileinkaðan konum og náð fram breytingum á skipulagsreglum flokksins þar sem jafnrétti kynjanna var staðfest sem eitt af grunngildum hans.

Því miður hefur þetta ekki breytt stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins ― niðurstöður prófkjara í Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi eru áfall fyrir flokkinn. Aðeins ein kona verður oddviti fyrir flokkinn á landsvísu á næsta kjörtímabili sem er óviðunandi. Og nú er sú staða hugsanlega komin upp að engin kona sem kosin var á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu þingkosningum muni taka sæti á komandi þingi.

Okkur eru það mikil vonbrigði að flokkurinn hafi ekki farið í þá vegferð með Landssambandinu að tryggja að staða eins og sú sem kom upp í Suður- og Suðvesturkjördæmi nú og í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 2014 gæti ekki komið upp aftur. Nú, á árinu 2016, gerum við þá sjálfsögðu kröfu að konur og karlar hafi sömu tækifæri til að hafa áhrif á mótun löggjafar og stefnu í samfélaginu.

Af þessari kröfu viljum við ekki gefa neinn afslátt. Í því ljósi og þess sem á undan er gengið eigum við ekki samleið með flokki sem skilar af sér niðurstöðum úr prófkjöri eins og þeim sem við höfum nýverið séð. Það virðist sem svo að engar ráðstafanir hafi verið gerðar til að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú er komin upp. Því höfum við tekið ákvörðun um að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og þær íhaldssömu skoðanir sem þar virðast ríkja.

Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna frá 2015

Jarþrúður Ásmundsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna (2011-2013)

Þórey Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna (2013-2015)