TF-GNA, nýjasta björgunarþyrla þjóðarinnar, lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Ferjuflugið frá Noregi hófst í Stafangri í Noregi í gær en millilent var á Hjaltlandseyjum, Færeyjum og Egilsstöðum áður en Gná komst loks í heimahöfn í Reykjavík.

Vélin er þriðja leiguþyrlan af gerðinni Airbus Super Puma EC225 en hinar sem fyrir eru, TF-EIR og TF-GRO, hafa reynst afar vel. Landhelgisgæslan er þar með komin með þrjár tiltækar björgunarþyrlur á nýjan leik. Óhætt er að fullyrða að flugfloti Landhelgisgæslunnar hafi aldrei verið fullkomnari en nú, er mat Gæslunnar eftir komu þyrlunnar til landsins.