Bjarni Ólafsson AK og Börkur NK lögðu á laugardaginn áleiðis á kolmunnamiðin. Þegar Bjarni Ólafsson var kominn um 10 mílur austur af Papey kom hann í mikið hvalalíf og varð var við stóran loðnuflekk. Fór hann um svæðið og sáust þá allmargar loðnutorfur.

Frá þessu segir í frétt Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Í kjölfar þessa var ákveðið í samráði við Hafrannsóknastofnun að Börkur, Polar Amaroq og Hákon EA myndu kanna svæðið en öll þessi skip eru með kvarðaða mæla til loðnuleitar. Skipin þrjú krussuðu hið umrædda svæði í samvinnu við fiskifræðinga og kom Polar Amaroq með gögnin sem safnað var til Neskaupstaðar í morgun og voru þau síðan send suður til Reykjavíkur með flugi þar sem þau verða yfirfarin á Hafrannsóknastofnun. Þegar loðnuleitinni var lokið í gær hélt Börkur áfram ferð sinni áleiðis á kolmunnamiðin.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Tómas Kárason skipstjóra á Beiti áður en skipið hélt til kolmunnaveiða. Fyrst var spurt hve langt væri á miðin.

„Það eru tæplega 800 mílur á þessi mið og það tekur okkur um þrjá sólarhringa að sigla þangað í góðu veðri. Þarna hefur fiskast ágætlega á þessum árstíma síðustu árin en veðrið er helsta áhyggjuefnið. Á þessum slóðum hefur ekki vantað fiskinn, það er klárt. Skip víða að eru að kolmunnaveiðum þarna, auk okkar Íslendinganna og skipa frá Írlandi eru þarna skip frá Noregi, Færeyjum, Rússlandi og Hollandi svo eitthvað sé nefnt. Nýjustu fréttir segja að töluvert af fiski sé að sjá á þessum slóðum en veðrið hefur verið að stríða mönnum mikið að undanförnu. Veiði hefur hins vegar verið góð á milli lægða,“ segir Tómas.

Áður en Beitir hélt áleiðis til kolmunnaveiðanna lagðist skipið að hafnarbakkanum við hina nýju netagerð Hampiðjunnar í Neskaupstað til þess að fá þar þjónustu netagerðarmannanna. Var þetta í fyrsta skipti sem skip lagðist að garðinum.