ORF Líftækni, Carbon Recycling International (CRI) og Kerecis hafa verið tilnefnd til Íslensku þekkingarverðlaunanna sem afhent verða á Íslenska þekkingardeginum þann 20. mars næstkomandi.

Yfirskrift verðlaunanna er „Verðmætasköpun með óhefðbundinni nýtingu auðlinda“ en við valið var haft til hliðsjónar hvernig fyrirtækin hafa í krafti nýsköpunar fundið og þróað leiðir til að bæta nýtingu á auðlindum landsins með því að búa til nýjar afurðir úr verðlitlum efnivið sem að fellur til við hefðbundna nýtingu.

Það voru félagsmenn FVH og dómnefnd sem völdu fyrirtækin þrjú en dómnefndin er skipuð aðilum úr íslensku viðskiptalífi. Verðlaunin verða afhent þann 20. mars á Grand hóteli á Íslenska þekkingardeginum, en dagurinn samanstendur af ráðstefnu of samkomu milli kl. 14 og 17 þar sem áhersla verður lögð á nýsköpun í auðlindanýtingu.