Smart Solutions er íslenskt sprotafyrirtæki sem vinnur að stafrænni væðingu hversdagsleikans með því að þróa lausnir sem snúa að hagræðingu á þjónustu ríkis og sveitafélaga við almenning. Fyrirtækið réði nýverið inn fimm ungar konur og er þar með 87,5% starfsmanna nú konur.

Smart Solutions stendur að baki útgáfu stafræna ökuskírteinisins í samvinnu við Stafrænt Ísland og Ríkislögreglustjóra. Stofnendur Smart Solutions eru feðginin Þórdís Jóna Jónsdóttir og Jón Jarl Þorgrímsson en þau hafa þróað tæknilausnir síðastliðin 2 ár er snúa að stafrænum pössum og veskis appi.

„Þróun stafræna ökuskírteinisins er nú á lokametrunum og við sjáum fram á að það verði aðgengilegt öllum í júní,“ er haft eftir Þórdísi, stofnanda og tæknistjóra Smart Solutions, í fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Fyrirtækið býður einnig upp á stafræna þjónustu á formi passa í gegnum veskisapp í snjallsímum. Allt sem gamla seðlaveskið innihélt áður er nú hægt að útfæra sem stafræna passa og verður á næstunni hægt að geyma í snjallforriti fyrirtækisins, Smart Wallet, eða hvaða veskisappi sem er á iOS eða Android.

Ráða fimm ungar konur

Fyrirtækið fékk á dögunum styrk frá Tækniþróunarsjóði og Nýsköpunarsjóði Námsmanna og hefur í kjölfarið ráðið inn í teymið fimm ungar konur með það að leiðarljósi að sækja fram í tækniheiminum.

Í janúar 2020 gekk Edda Konráðsdóttir til liðs við Smart Solutions og sér hún um viðskiptaþróun fyrirtækisins. Nú stækkar teymið enn á ný þar sem fimm ungar konur ganga til liðs við Smart Solutions, þær Vigdís Hlíf Jóhönnudóttir og Vaka Njálsdóttir sem sölu- og markaðsfulltrúar og þær Andrea Skúladóttir, Helga Lárusdóttir og Katla Rún Arnórsdóttir sem forritarar.

„Tækniþróunarsjóður og Nýsköpunarsjóður námsmanna hafa veitt okkur stuðning og tækifæri til þess að sækja fram á íslenskum markaði og munum við nýta það tækifæri til þess að efla stuðningsumhverfi kvenna í tækni og skapa vettvang fyrir ungar konur innan tæknigeirans,“ segir Þórdís.

Smart Solutions
Smart Solutions
© Aðsend mynd (AÐSEND)