© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þröstur Ingvar Gylfason er nýr yfirflugstjóri Wow air.

Hann tekur við starfinu af Robert Ödlund, sem heldur áfram að starfa hjá félaginu sem flugstjóri og yfirmaður þjálfunarmála.

Þröstur hefur starfað hjá Wow air í eitt og hálft ár. Áður en hann tók við starfi yfirflugstjóra starfaði hann sem flugstjóri hjá félaginu, og frá apríl 2015 sá hann um línuþjálfun fyrir nýja flugmenn Wow air. Þar áður starfaði hann hjá Air Atlanta.