Eftirlitsstofnun EFTA þarf að greiða málskostnað Íslendinga vegna málarekstursins við Icesave málið fyrir EFTA dómstólnum. Þá þarf framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að greiða fyrir sinn eigin málarekstur.

Þá þurfa Bretar, Hollendingar, Liechtenstein og Norðmenn einnig að greiða fyrir sinn eigin málskostnað samkvæmt úrskurði dómsins.