Helgi Jóhannesson hrl. hefur stofnað félagið Fjallafrelsi ehf. „Ég stofnaði þetta félag til að halda utan um útivist sem ég er í og ef til vill einhverjar ferðir,“ segir Helgi.

Hann segist þó alls ekki hættur í lögmennsku. „Þetta er kannski rökrétt útvíkkun á áhugamálinu,“ segir hann, en fólk hafi gjarnan leitað til hans til að vera leiðsögumaður í útivistarferðum.

„Það má segja að ég sé kominn með hliðarbúgrein í þessu,“ bætir hann við. Helgi er einn reyndasti lögmaður landsins á sínu sviði og hefur starfað hjá LEX frá árinu 1988.