Von er á þúsund blaðamönnum til landsins í desember og janúar þegar nýr Land Rover Discovery Sport verður kynntur hér á landi. Verður þetta með stærri bílakynningum sem fram hafa farið hérlendis ef ekki sú stærsta.

Fyrirtækið HL Adventure mun að stórum hluta sjá um skipulagninguna, en fyrirtækið hefur getið sér gott orð í skipulagningu svokallaðra lúxusferða fyrir efnaða ferðamenn.

Jón Ólafur Magnússon, eigandi HL Adventure, staðfesti í samtali við Viðskipablaðið í síðustu viku að von væri á þúsund blaðamönnum til landsins í tengslum við kynningu á nýjum bíl. Hann vildi ekki segja hvaða bíl en samkvæmt heimildum blaðsins er það, eins og áður sagði, vegna kynningar á nýjum Land Rover Discovery Sport.

HL Adventure skipuleggur ferðir fyrir alls konar hópa, allt frá brúðkaupsferðum upp í ferðir stærri hópa.