Þyrí Dröfn Konráðsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hjá N1, en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þyrí hefur starfað sem sérfræðingur á markaðssviði N1 frá því í ágúst 2012. Áður starfaði hún hjá MP banka frá 2010 til 2011 og þar á undan hjá Straumi frá 2007 til 2009.

Þyrí Dröfn er með BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og vinnur að mastersritgerð í markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Hún er í sambúð með Jóhannesi Hrannari Guðmundssyni og eiga þau þrjú börn.