Velta á hlutabréfamarkaði var með allra minnsta móti í dag, en Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,05% í tæplega 38,8 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Regins hækkaði um 0,31% og VÍS um 0,19%. Gengi bréfa Haga lækkaði um 0,30% og TM um 0,18%. Gengi annarra félaga stóð í stað.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,11% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,10% og sá óverðtryggði um 0,13%. Velta í viðskiptum með bréf í vísitölunni nam tæpum þremur milljörðum króna.