Íslenskir handhafar réttarins á hinu danska konsepti af Tiger-verslununum hafa opnað tvær Tiger-verslanir í höfuðborg Noregs, Ósló. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðs Morgunblaðsins í dag. Þar segir að verið sé að skoða möguleika á því að opna enn fleiri verslanir í Noregi. „Þetta eru mjög svipaðar búðir að stærð og þær sem við erum með hér á Íslandi,“ segir Sigurður Þór Snorrason, fjármálastjóri hjá Tiger, við viðskiptablaði Morgunblaðsins . Hann segir að útrásin til Noregs sé gerð í samstarfi við móðurfélagið í Danmörku og byrjunin lofi góðu.