Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 3.945 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,1% í gær og hóf að lækkað aftur strax við opnun markaða í morgun. Örlítið hefur þó dregið úr þeirri lækkun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er nú ekki mikil, tæplega 800 milljónir. Þar af eru rúmar 300 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 240 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og um 130 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 0,6% í morgun og er gengisvísitalan nú 167,7 stig.