Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 8. ágúst 2008. Alls bárust tilboð að nafnvirði 19,7 milljarðar króna í útboði Íbúðalánasjóðs á íbúðabréfum fyrir helgi.

Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar var ákveðið að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150224 að nafnvirði 3,5 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,68%.

HFF150434 að nafnvirði 3,1 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,27%.

HFF150644 að nafnvirði 1,4 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,15%.

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,43% og 4,45% með þóknun.

Fram kemur í tilkynningunni að uppgjörsdagur viðskiptanna er 14.ágúst 2008.