Tilboð Novators í Actavis rennur út kl. 16.00 í dag. Tilboðið, sem hljóðar uppá 1,075 evrur á hlut hefur fengið ágætar undirtektir og hafa um 80% hlutahafa í Actavis gengið að tilboðinu samkvæmt upplýsingum frá Novator.

Markaðsvirði félagsins miðað við útistandandi yfirtökutilboð er 322 milljarðar króna. Þess má geta að Greining Glitnis hefur mælt með því að fjárfestar taki tilboði Novators.