Opin kerfi og Ríkiskaup hafa gengið frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði. Um er að ræða samning þar sem Opin Kerfi er skilgreint sem forgangsbirgi Ríkiskaupa næstu þrjú árin í kaupum Ríkisstofnana á miðlægum tölvubúnaði.

Samningur var undirritaður í kjölfar útboðsferlis sem lauk nýverið og er markmiðið með honum að tryggja ríkisstofnunum hagkvæmari verð á tölvubúnaði. Allar stofnanir og fyrirtæki í meirihluta eigu ríkisins á hverjum tíma eru aðilar að rammasamningum ríkisins.

Sparnaður gæti numið tugum milljóna

„Það er ánægjulegt fyrir okkur hjá Opnum Kerfum að vera valin sem forgangsbirgi ríkisins þegar kemur að miðlægum búnaði, með þessu höfum við tryggt betri þjónustu og  hagstæðari verð til stofnanna Ríkisins næstu misserin,“ segir Sigurgísli Melberg, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Opinna Kerfa.

„Samningurinn við Opin kerfi sem forgangsbirgja í kjölfar útboðsins er góð leið til að draga úr og halda í við kostnað í rekstri ríkisins og einfalda alla innkaupaferla segir Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa. Tilboð Opinna kerfa var um 65% af kostnaðaráætlun eða 35% undir kostnaðaráætlun sem þýðir að áætlaður sparnaður ríkisins á ársgrundvelli getur numið tugum milljónum króna.

Í samningnum er tilgreint um ákveðnar tegundir netþjóna frá Fujitsu og HPE sem Ríkistofnanir geta keypt hjá Opnum Kerfum á hagkvæmari verði en áður hefur sést. Á þennan hátt eru Ríkisstofnanir og fyrirtæki hvött til að beina viðskiptum sínum til forgangsbirgja samkvæmt rammasamningnum.