peningar
peningar
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins fyrr í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð ákvarðaði söluverðið.


Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn RIKB 13 0517 að fjárhæð 6.800 milljónir króna að nafnverði. Þremur tilboðum var tekið fyrir 6.400 milljónir króna að nafnverði á söluverðinu 107,650. Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn RIKB 16 1013 að fjárhæð 3.370 milljónir króna að nafnverði. Tólf tilboðum var tekið fyrir 3.120 milljónir króna að nafnverði á söluverðinu 101,800.

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 21. júlí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 22. júlí 2011.