© BIG (VB MYND/BIG)
Alls bárust 22 gild tilboð í ríkisvíxla í flokkunum RIKV 11 1017 að fjárhæð 13.862 milljónir króna að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 12.862 milljónir króna að nafnverði á verðinu 99,225 í útboði á ríkisvíxlum hjá Lánamálum ríkisins í dag. Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn RIKV 12 0116 að fjárhæð 6.500 milljónir króna að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.000 milljónir króna að nafnverði á verðinu 98,582.

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár.