Búist er við því að ríkisstjórn Bandaríkjanna kynni aðgerðir sínar til að styðja við Freddie Mac og Fannie Mae áður en markaðir opna vestan hafs á morgun.

Samkvæmt frétt Reuters er jafn vel búist við að aðgerðirnar verði kynntar áður en markaðir opna í austurlöndum, en fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna neitaði að tjá sig um það.

Búist er við að samið verði um lánalínur fyrir fjárfestingalánasjóðina.

Bandaríkjamenn búast við tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu með kvöldinu, þannig að hún kemur um miðja nótt á íslenskum tíma.