Starfsmannafundur verður haldinn hjá VÍS í dag klukkan 16 í dag. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins verður þar tilkynnt um hver tekur við starfi forstjóra félagsins.
Guðmundur Örn Gunnarsson lét af störfum sem forstjóri félagsins í maí síðastliðnum. Þá hætti Guðmundur Örn einnig sem forstjóri Líftryggingafélags Íslands. Í tilkynningu frá VÍS í maí kom fram að stjórn Vátryggingafélagsins hafi fallist á ósk Guðmundar Arnar um að láta af störfum. Ákvörðunin var tekin í framhaldi af úttekt FME á starfsemi og viðskiptaháttum VÍS í tíð eldri stjórna frá árinu 2008.
Þá tók Friðrik Bragason, framkvæmdastjóri vátryggingasviðs VÍS, tímabundið við starfi forstjóra félagsins.