Tilkynnt hefur verið um lok á skiptum þrotabúa félaganna Melís hf., AGE hf. og Rafeindaþjónustan hf. Rúmlega fjórtán ár eru síðan skiptum lauk en auglýsingar virðast aldrei hafa verið birtar. Að minnsta kosti fundust þær ekki þrátt fyrir eftirgrennslan. Tilkynning um skiptalok var birt í Lögbirtingablaðinu síðasta mánudag.
Hjalti Steinþórsson lögfræðingur var skiptastjóri búanna en hann var á þessum árum starfandi hæstaréttarlögmaður. Hann er í dag forstöðumaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Hann segir að málin hafi komið upp í dag þar sem færa átti að skjöl vegna þeirra á Þjóðskjalasafn Íslands. Til þess að tollstjóri geti lokað málum þurfi auglýsing að birtast.
Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undlr liðnum Tölublöð.