Lögð verður fram tillaga fyrir aðalfund FL Group þann 21. mars þess efnis að heimila félaginu að kaupa allt að 10% af eigin hlutum, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kaupverð bréfanna má vera allt að 20% yfir meðalsöluverði hluta skráðu í Kauphöll Íslands á síðastlinum tveimur vikum áður en kaup eru gerð.

Það eru ekki sett lágmörk á heimildina, hvorki hvað varðar kaupverð né stærð hlutar sem keyptur er í hvert skipti.

Aðalfundur FL Group verður haldinn þann 21. mars.