Á fundi forsætisnefndar Alþingis í gær voru afgreiddar tillögur um fyrirkomulag aðstoðarmanna alþingismanna en í tengslum við breytingar á þingsköpum Alþingis í desember voru samþykktar breytingartillögur við fjárlög ársins 2008 um aukin framlög til Alþingis til að koma á og kosta störf aðstoðarmanna alþingismanna.

Þá er gert ráð fyrir starfi starfi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokka og hins vegar starfi aðstoðarmanna þingmanna úr hinum víðfeðmu kjördæmum, Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forseta Alþingis.

Samkvæmt tillögunni munu aðstoðarmenn formanna flokkanna verða í heilu starfi og hafa starfsaðstöðu á skrifstofum Alþingis, en aðstoðarmenn alþingismanna verða í hlutastarfi, þriðjungs-starfi, og hafa starfsaðstöðu í kjördæmunum.

Þingmönnunum verður heimilt að slá sér saman um ráðningu aðstoðarmanns og hækkar þá starfshlutfallið í samræmi við það. Laun aðstoðarmanna verða hlutfall af þingfararkaupi.

Einnig kemur fram í tilkynningunni að aðstoðarmennirnir verða ráðnir eftir tillögu viðkomandi alþingismanna en skrifstofa Alþingis mun sjá um alla launaumsýslu og gerð ráðningarsamninga. Ráðningartímabil verður að hámarki til loka kjörtímabils hverju sinni.