Viðskiptaráð Íslands telur breytingartillögur við frumvarp um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum of íþyngjandi. Þar eru meðal annars sett ákvæði sem eiga að sporna gegn þunnri eiginfjármögnun. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Viðskiptaráðs.

VÍ telur það mikilvægt að vinna gegn þunnri eiginfjármögnun, en telur jafnframt að þessar tillögur til breytinga gangi of langt.

Þar er ekki stuðst við viðmið sem að lögð voru til á Samráðsvettvangi um aukna hagsæld í breytingunum. Einnig ganga tillögurnar lengra en skýrsla starfshóps sem skipaður var af fjármála- og efnahagsráðuneytinu um reglur þunnrar eiginfjármögnunar. Viðskiptaráð telur einnig að breytingartillögurnar fela í sér innleiðingu á tilskipun ESB með meira íþyngjandi hætti en þörf krefur.

Í umsögn ráðsins er tekið fram að: „við lestur ákvæðisins er takmarkar þunna eiginfjármögnun er ekki að sjá að takmörkun vegna vaxtafrádráttar eigi einungis við um lánaviðskipti milli tengdra aðila í mismunandi löndum heldur eigi takmörkunin einnig við um lánaviðskipti milli tengdra aðila sem báðir hafa starfsemi hér á landi. Að mati Viðskiptaráðs væri rétt að hafa orðalag ákvæðisins skýrt svo að ekki fari milli mála að einungis sé átt við lánaviðskipti milli móður- og dótturfélags sem ekki eru staðsett í sama ríki.“