Auglýsingaherferð Kringlunnar, sem unnin var í samstarfi við auglýsingastofuna Kontor Reykjavík, hefur hlotið tilnefningu til alþjóðlegu hönnunarverðlaunanna Brand Impact Awards. Þetta er eina íslenska tilnefningin hjá Brand Impact Award en verðlaunin verða veitt í London 10. september næstkomandi. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Tímaritið Computer Arts og vefsíðan Creative Bloq standa fyrir verðlaununum Brand Impact Award sem veitt eru fyrir verk sem skarað hafa fram úr í heimi skapandi hönnunar og mörkunar (branding). Meðal sigurvegara Brand Impact Awards síðustu ára má nefna BBC, McDonalds, Carlsberg o.fl.

„Auglýsingaherferð Kringlunnar hefur vakið mikla athygli fyrir snjalla og nýstárlega útfærslu og sýnir Kringluna sem leiðandi verslunarmiðstöð með óendanlega mikið vöruúrval. Jólaauglýsingar Kringlunnar þóttu t.a.m bera vott um djarfa og frumlega hönnun þar sem helgimyndir mótuðust af jólagjafahugmyndum,“ segir í fréttatilkynningu.

„Þessi tilnefning er mikill heiður fyrir Kringluna og staðfestir að markaðsstarfið stenst fyllilega samanburð á alþjóðlegum vettvangi. Það er kúnst að koma á fágaðan hátt á framfæri, fjölbreyttu úrvali sem býðst í Kringlunni, en um leið að ramma inn í auglýsingaefni hlýju og ferska strauma sem vekja athygli og gott í hjartað um leið. Það er það sem Kringlan stendur fyrir. Stolt og ánægð bíðum við spennt eftir 10. september og þökkum Kontor fyrir árangusríkt samstarf,“ segir Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, í tilkynningunni.

Kringlan og Kontor Reykjavík hafa unnið til verðlauna hérlendis fyrir auglýsingaherferðina. Þar á meðal fékk veggspjald Kringlunnar Lúður, Íslensku auglýsingaverðlaunin 2020 og tvenn FÍT verðlaun, sem eru verðlaun Félag íslenskra teiknara.

„Það er einstaklega gaman að fá viðurkenningu fyrir svona krefjandi samstarfsverkefni úti í hinum stóra heimi þar sem hörð samkeppni ríkir. Þessi tilnefning segir okkur að faglega stöndum við fyllilega jafnfætis erlendri samkeppni og við erum bara ótrúlega þakklát, glöð og stolt. Samstarfið við Kringlunni hefur verið frábært í alla staði enda framsækið fólk þar í brúnni,“ er haft eftir Sigrúnu Gylfadóttur, Creative Director hjá Kontor Reykjavík, í tilkynningunni.