Icelandair, Íslandsbanki og Íslandsstofa eru tilnefnd til markaðsverðlauna ÍMARK, en verðlaunin eru veitt þeim fyrirtækjum sem þykja hafa skarað fram úr í markaðsmálum undanfarin tvö ár og náð árangri.

Verðlaunaafhendingin verður á morgun klukkan 12 á Hilton Reykjavík Nordica og mun forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenda verðlaunin og María Hrund Marinósdóttir, formaður ÍMARK og markaðsstjóri Strætó, stýra dagskránni.