Bankasýsla ríkisins hefur tilnefnt sjö aðalmenn og tvo varamenn í kosningu til stjórnar Íslandsbanka fyrir aðalfund bankans. Frá þessu er greint á heimasíðu bankans. Aðalfundur bankans verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 19. apríl. Friðrik

Bankasýslan tilnefnir tvo núverandi stjórnarmenn til áframhaldandi setu, þau Friðrik Sophusson og Helgu Valfells. Auk þeirra eru tilnefnd sem aðalmenn í stjórninni þau Anna Þórðardóttir, Auður Finnbogadóttir, Árni Stefánsson, Hallgrímur Snorrason og Heiðrún Jónsdóttir.

Þá tilnefnir Bankasýslan varamenn í stjórn Íslandsbanka, þau Pálma Kristinsson og Herdísi Gunnarsdóttur.