Póst- og fjarskiptastofnun tók í morgun bráðabirgðaákvörðun, þar sem frestað er gildistöku ákvörðunar Íslandspósts um að fella niður viðbótarafslætti hjá söfnunaraðilum á póstmarkaði. Söfnunaraðilar eru fyrirtæki á borð við Burðargjöld og Póstmarkaðinn, sem safna pósti frá stórnotendum og miðla áfram til Íslandspósts, sem hefur einkarétt á dreifingu bréfa undir 50 grömmum. Að mat i Félags atvinnurekenda stöðvaði stofnunin þar með tilraun tilraun Íslandspósts til að bola keppinautum af póstmarkaði. Sú tilraun var gerð innan við tveimur mánuðum eftir að ríkisfyrirtækið undirritaði sátt við Samkeppniseftirlitið um bætta samkeppnishætti.

Í frétt frá Félagi atvinnurekenda segir félagið að það fagni ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Telur félagið að ef uppsögn afsláttanna hefði fengið að standa, hefði það haft gífurleg áhrif á samkeppni á póstmarkaði. Segir FA að rekstrargrundvellinum hefði verið kippt undan starfsemi söfnunaraðila, þ.e. þeir hefðu neyðst til að segja upp öllum sínum viðskiptasamningum og hætta starfsemi. Í kjölfarið hefðu viðskipti þeirra fallið ríkisfyrirtækinu Íslandspósti í skaut.

Íslandspósutr tilkynnti söfnunaraðilum bréflega þann 7. apríl síðastliðinn að afslættir yrðu felldir niður og greindi frá því að þeir myndu falla úr gildi 1. september. FA hefur síðan þá skorað á fyrirtækið að falla frá ákvörðuninni, enda væri hún bæði ólögmæt og stórskaðleg samkeppni. Þrátt fyrir að það hafi stjórnendur Íslandspósts haldið sínu striki.

Í fréttinni segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda: „Við fögnum auðvitað ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Það er hins vegar með miklum ólíkindum að innan við tveimur mánuðum eftir að kunngjörð var sátt Samkeppniseftirlitsins og Íslandspósts, sem átti að taka á óviðunandi samkeppnisháttum ríkisfyrirtækisins, skuli stjórnendur þess hafa reynt að bola keppinautum út af póstmarkaði. Það vekur spurningar um hvort Íslandspóstur telji sig yfirleitt bundinn af sáttinni.“ Hann segir einnig: „Það hlýtur að vera hlutverk stjórnar Íslandspósts, sem fjármálaráðherra skipar, og eftir atvikum þeirrar eftirlitsnefndar sem Samkeppniseftirlitið hefur sett til að hafa eftirlit með því að sáttin sé haldin, að tryggja að stjórnendur fyrirtækisins haldi sig innan ramma laga og reglna og starfi í sátt við umhverfi sitt. Þetta mál sýnir að sáttin virðist litlu hafa breytt um framgöngu þeirra gagnvart keppinautum.“