Tim Cockroft hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta Kaupþings banka samstæðunnar (e. Global Head of Capital Markets). Tim starfar nú sem framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta hjá Kaupþingi í Bretlandi. Hann tekur við stöðunni þegar í stað og mun jafnramt halda áfram að stýra Markaðsviðskiptum í Bretlandi.

Í tilkynningu vegna skipunarinnar segir að hún sé liður í frekari samræmingu innan samstæðunnar á Markaðsviðskiptum og er markmið hennar einnig að bæta enn þjónustu við viðskiptavini bankans.

Tim Cockroft hefur mikla starfsreynslu sem spannar yfir átján ár og þar að auki hefur hann tekið þátt í vel heppnaðri uppbyggingu Markaðsviðskipta Kaupþings Singer og Friedlander, sem og fyrirtækjaráðgjafar og hlutabréfaviðskipta með áherslu á meðalstór fyrirtæki. Áður en hann gekk til liðs við Kaupþing var hann forstjóri verðbréfafyrirtækisins KBC Peel Hunt.