Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun rýna í niðurstöður Icesave-málsins enda líkur á að dómurinn hafi áhrif á innstæðutryggingakerfið innan ESB-ríkjanna, að mati Tim Ward, málaflutningaflutningsmanns Íslands í Icesave-málinu.

Lögfræðiteymi Íslendinga situr nú fyrir svörum um Icesave-málið í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.

„Ég er viss um að framkvæmdastjórnin mun skoða dóminn,“ sagði Ward á fundinum.