Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að samþykkja tímabundið ríkisaðstoð til stuðnings við Byr hf. ESA óskar eftir því að íslensk stjórnvöld leggi fram innan sex mánaða áætlun um endur-skipulagningu nýja Byrs eða slit þess félags. Það er ekki fyrr en slík áætlun liggur fyrir sem ESA getur tekið endanlega afstöðu til ríkisaðstoðarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt er á heimasíðu ESA. Ríkisaðstoðin felst einkum í 900 milljóna króna hlutafjárframlagi ríkissjóðs til Byrs og samningi um víkjandi lán sem getur numið allt að 5 milljörðum króna.

Tilkynning ESA:

„Starfsemi Byrs felst í fjármálaþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á íslenskum markaði og er fyrirtækið nú fjórði stærsti banki á Íslandi á þessu sviði.

Í kjölfar yfirtöku Fjármálaeftirlitsins (FME) á Byr sparisjóði (gamla Byr) í apríl 2010 stofnaði íslenska ríkið Byr hf. (nýja Byr), sem er hlutafélag að fullu í eigu ríkissjóðs. Hefur nýi Byr tekið yfir allar eignir, vissar skuldir og starfsemi gamla Byrs, sem er í slitameðferð.

Ríkisaðstoðin felst einkum í 900 milljóna króna hlutafjárframlagi ríkissjóðs til stofnunar Byrs hf. og samningi um víkjandi lán sem getur numið allt að 5 milljörðum króna. Með þessum ráðstöfunum er nýja Byr gert kleift að uppfylla kröfur FME um 16% eiginfjárhlutfall.

Ríkisaðstoðin auðveldar endurfjármögnun nýja Byrs og uppgjör á kröfum milli gamla og nýja bankans, sem leiðir að lokum til þess að kröfuhafar í gamla Byr eignast um 95% hlutafjár í nýja Byr, en hlutur ríkisins verður um 5%. Markmið aðstoðarinnar er að viðhalda tiltrú á íslenskt fjármálakerfi, en líklegt er að hrun nýja Byrs hefði orðið alvarlegt áfall, einkum fyrir innlánaeigendur á Íslandi.

Við núverandi aðstæður getur Byr ekki mætt fjárþörf sinni á fjármálamörkuðum. Að mati ESA eru ráðstafanirnar viðeigandi og í samræmi við aðsteðjandi vanda, þar sem þær gera nýja Byr kleift að uppfylla lögbundnar eiginfjárkröfur jafnframt því að undirbúa áætlun um endurskipulag á rekstri sem miðar að því að tryggja arðbæran rekstur til frambúðar.

Það dregur úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum aðgerðanna á samkeppni að eigendur að gamla Byr hafa að fullu tapað stofnfé sínu og verður ekki bætt það tap. Kröfur lánadrottna gamla Byrs hafa jafnframt verið færðar niður.“