Tímagjald slitastjórnar Glitnis er komið upp í nærri sextíu þúsund krónur og hefur það hækkað um 250% allt frá því að slitameðferð búsins hófst árið 2009, að því er segir í frétt DV . Fær slitastjórn Glitnis 20 þúsund krónum hærri þóknun á tímann heldur en slitastjórn Kaupþings. Þóknanir til slitastjórnarinnar, sem er skipuð þeim Steinunni Guðbjartsdóttur og Páli Eiríkssyni, námu samtals 118 milljónum á fyrstu sex mánuðum ársins og jukust þær um 27 milljónir á milli ára.

Í kynningu sem var lögð fyrir kröfuhafafund Glitnis síðastliðinn þriðjudag, og DV hefur undir höndum, kemur fram að tímagjald slitastjórnar vegna ársins 2015 sé 390 evrur, jafnvirði um 57 þúsund íslenskar krónur. Hefur tímagjald slitastjórnar Glitnis hækkað gríðarlega á undanförnum árum en í upphafi slitameðferðar búsins árið 2009 var það um 16 þúsund krónur.

Í samtali við DV segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, að tímagjaldið, sem var áður um 35 þúsund krónur, hafi ekki hækkað í nokkur ár. Hún segir að taka þurfi tillit til þessa mikla álags sem fylgi starfinu. Vinnutíminn er oftar en ekki allur sólarhringurinn og lítill tími gefist til þess að taka sér frí frá starfinu auk þess sem fyrirséð er að klára þurfi slit Glitnis með nauðasamningi á þessu ári, öllum kröfuhöfum til fjárhagslegs ávinnings þannig að telji í tugum milljarða.