Nýr samningur milli Alcan á Íslandi og ANZA um rekstur tölvukerfis Alcan hefur verið undirritaður. Samningurinn er til fjögurra ára og felur í sér að ANZA sér um allan daglegan rekstur vélbúnaðar og netkerfis Alcan í Straumsvík. Ennfremur annast ANZA viðhald og forritun ýmissa hugbúnaðar-, iðntölvu-og skjágæslukerfa og tekur að sér margvísleg ný verkefni á því sviði.

ANZA hefur séð um rekstur tölvukerfis Alcan í Straumsvík í átta ár og samstarfið hefur gengið vel. Fyrri samningur þessara fyrirtækja rann út um nýliðin mánaðamót, en fyrir þann tíma hafði Alcan að vel athuguðu máli óskað eftir samningaviðræðum við ANZA þar sem krafa var gerð um lækkun á kostnaði án þess að það kæmi niður á þjónustustiginu. Stjórnendur ANZA töldu það mögulegt ef fyrirtækið fengi fleiri verkefni en áður sem tengdust tölvukerfi Alcan. Þannig gæti ANZA hámarkað nýtingu á búnaði sínum og mannafla, lækkað einingaverð á þjónustunni en selt fleiri einingar.

?Flókið og margþætt tölvukerfi Alcan gegnir lykilhlutverki í rekstri og framleiðslu álversins," segir Þórunn Pálsdóttir, yfirmaður tölvumála Alcan. ?Kerfið þarf þess vegna að vera öruggt allan sólarhringinn árið um kring og þjónustan í háum gæðaflokki. Nýi samningurinn tryggir Alcan aðgang að þeirri tækni og þekkingu sem ANZA býr yfir ásamt þeim sveigjanleika sem er nauðsynlegur í síbreytilegum heimi tölvutækninnar." Hún segir samninginn í anda Alcan um fækkun birgja og samvinnu við þá með hagkvæmni og sparnað að markmiði til lengri tíma litið.

"Samningurinn endurspeglar fyrst og síðast traust Alcan á ANZA en það traust varð ekki til á einni nóttu heldur áralangri góðri og samhentri vinnu allra starfsmanna ANZA," segir Guðni B. Guðnason framkvæmdastjóri ANZA.