Bandaríski tónlistarmaðurinn og leikarinn Justin Timberlake skrapp í verslunarferð í 66°Norður í Skeifunni á laugardag ásamt fylgdarliði sínu.

Viðskiptablaðið hefur heimildir fyrir því að hann hafi keypt talsvert af klæðnaði á sig og konu sína, leikkonuna Jessicu Biel. Þá versluðu einnig nokkrir úr fylgdarliði hans fatnað. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var Timberlake mjög almennilegur og hress og gaf hann afgreiðslufólki í versluninni VIP-miða á tónleikana.

Justin Timberlake og Jessica Biel bætast þar með í Hollywood stjarna sem klæðast fatnaði frá 66°Norður. Fyrir hafa þau Scarlett Johannson, Matthew McConaughey, Eli Roth og Quentin Tarantino klæðst fatnaði frá íslenska fataframleiðandanum.