Kostnaðarhlutföllin hafa rokið upp hjá íslensku viðskiptabönkunum en þeir stefna nú greinilega allir að því að ná meira út úr núverandi rekstri með aukinni hagræðingu og niðurskurði á rekstrarkostnaði og þá væntanlega einnig á launakostnaði.
Starfsmönnum bankanna hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum misserum en meðallaunakostnaður bankanna á hvern starfsmann nam 1,3 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.
Viðlagið er að vísu gamalkunnugt en líklega nýlunda að heyra það óma úr ranni íslenskra banka og fjármálafyrirtækja: hagræðing, aðhald og niðurskurður kostnaðar. En skýringin er í grunnatriðum tiltölulega einföld; fjármagnsmarkaðir eru beinlínis lokaðir íslensku bönkunum eins og stendur og það sér fyrir endann á vexti þeirra, að minnsta kosti í bili og vegna ástands á mörkuðum eru engar líkur á að mikill gengshagnaður muni bera uppi hagnað þeirra eins og verið hefur á undanförnum misserum.
Í helgarblaði Viðskiptablaðsins er nánari úttekt á starfssemi og framtíðarhorfum bankanna.
Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .