Fréttavefurinn Tíminn gengur í endurnýjun lífdaga um mánaðamótin, en nýtt útgáfufélag, Heilsíða ehf., hefur gengið frá þriggja ára leigusamningu á léninu timinn.is. Engar uppfærslur hafa orðið á vefnum í um tvö ár, en hann verður nú reistur við á ný.
Helgi Þorsteinsson, fyrrverandi auglýsingasölumaður á 365 og fasteignasali, segir í samtali við Viðskiptablaðið að vefurinn verði frétta- og afþreyingarvefur. Heilsíða auglýsti í dag eftir þremur blaðamönnum og auglýsingasölumanni í Fréttablaðinu. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð,“ segir Helgi. „Það er strax komið töluvert af umsóknum.“
Helgi var fyrr á árinu orðaður, ásamt hópi fjárfesta, við ætluð kaup á Fréttatímanum og greindi DV frá því í júlí síðastliðnum. Helgi vildi hins vegar ekki tjá sig um það mál við vb.is.