Í dag var undirritaður samningsrammi um orkusölu til kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju, sem áformað er að reisa í Ölfusi, rétt vestan Þorlákshafnar. Væntanlegur kaupandi er Thorsil ehf, félag sem kanadíska fyrirtækið Timminco Limited og Strokkur Energy ehf. stofnuðu saman um verkefnið. Timminco rekur eina kísilmálmverksmiðju í Kanada. Stjórn Timminco samþykkti samningsrammann fyrir sitt leyti í fyrri viku og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur á fundi í dag.

Síðasti áfangi í uppbyggingu verksmiðjunnar verður til framleiðslu á kísilhleifum, sem notaðir eru við gerð sólarrafhlaðna. Það er Timminco sérlega mikilvægt að geta notað umhverfisvænan orkugjafa við uppbyggingu verksmiðjunnar segir í tilkynningu.

Tekur alla orku Hverahlíðarvirkjunar

Um er að ræða sölu á 85 megavöttum til 20 ára. Afla á orkunnar frá Hverahlíðarvirkjun og er um að ræða alla framleiðslu virkjunarinnar. Umhverfismati vegna hennar er lokið. Fjármögnun hennar var tryggð að hálfu leyti með hagstæðu láni frá Evrópska fjárfestingabankanum. Það var afgreitt af hálfu bankans í nóvember síðastliðnum og var fyrsta erlenda fjármögnun sem íslenskt fyrirtæki hafði samið um frá hruni fjármálakerfisins haustið 2008. Fjárfestingin í virkjuninni nemur um 30 milljörðum króna og verður ekki ráðist í frekari framkvæmdir við hana fyrr en fjármögnun er lokið og fyrir liggur endanlegur sölusamningur á orku.

Áformað er að reisa verksmiðjuna á nýjum iðnaðarlóðum, sem verið er að skipuleggja vestan byggðarinnar í Þorlákshöfn. Heildarfjárfesting í henni er á þessu stigi áætluð 162 milljónir evra, sem svarar til um 28,5 milljarða íslenskra króna. Áfangar áformaðrar uppbyggingar eru þrír, á árunum 2013 til 2014. Nú þegar starfa sex verkfræðingar og stjórnendur við verkefnið hér á landi.

160 manns starfa við verksmiðjuna

Á byggingartíma er gert ráð fyrir 350 til 400 ársstörfum við verkefnið og að 160 manns muni starfa við verksmiðjuna fullbyggða. Talið er að tilkoma verksmiðjunnar muni hafa áhrif á vinnumarkað í Þorlákshöfn og Ölfusi, í Hveragerði, í Árborg og á Reykjavíkursvæðinu.

Í tilkynningu kemur fram að í samningsrammanum er tekið á helstu efnisatriðum hugsanlegs orkusölusamnings. Samkomulagið er ekki bindandi og er stefnt að því að ljúka samningi milli aðila á næstu mánuðum. Miðað við þekktar forsendur og spár, er gert ráð fyrir að arðsemi byggingar Hverahlíðarvirkjunar verði í samræmi við þau markmið sem sett voru fram í Heildarstefnu Orkuveitu Reykjavíkur, sem samþykkt var einróma í stjórn OR í lok árs 2009.