Tinna Björk Hjartardóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Applicon ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Applicon.

Tinna hefur starfað í tvö og hálft ár hjá Applicon, fyrst sem Microsoft ráðgjafi og svo sem vörustjóri SharePoint lausna. Hún starfaði áður sem markaðsstjóri hjá Marel Ltd. í Bretlandi. Hún er tölvunarfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík.

Tæplega 200 manns starfa hjá Applicon, sem er í eigu Nýherjasamstæðunnar.